HÆHÆSmiley Gangsters
HÆHÆ! Þetta er Alexandra Líf eða smiley-gangster1Vá ég skoðaði boggið mitt í dag og hugs bara gosh hvað það er langt síðan við skrifuðum!!!!!!!
Það er næstum hálft ár síðan
En ok nú er komin maí, 18, maí. Það er alveg að koma sumarfrí og próf eru að byrja eða eru byrjuð hjá sumum. Við erum komnar í sjöunda bekk. Ég man ekki hvort að ég var búin að segja það eða ekki, en Lilja er flutt til Hafnafjarðar og er byrjuð í skóla sem heitir Hraunvallaskóli. Ég held að hún sé bara ágætlega ánægð í nýja húsinu og skólanum. Við erum náttúrulega báðar leiðar að vera svona langt í burtu frá hvort öðru. Framundan er brjáluð vika hjá mér, mikið að læra. Ég er komin með aðra síðu, svona skóla síðu. Hún er: http://www.alexandralif.blog.is
Einnig mæli ég með að skoða þessa skólasíðu sem vinkona mín hún Ingunn Sara á og þar eru mörg geggt tööfft verkefni sem hún er búin að gera. Þetta er netfangið: http://www.ingunnsara.blog.is
Endilega skoðið.
Verð að fara
bæbæ
Hæ hæSmiley Gangsters
Í gær var 19.desember en þá voru litlu jólin í skólanum. Við fengum að koma með smákökur og gos og kennarinn las fyrir okkur jólasögu. Við æfðum helgileikin einu sinni en það voru ekki áhorfendur eins og ég hélt að það myndi vera. Eftir æfinguna fórum við inn í stofu að borða smákökurnar okkar og drekka gosið okkar.Síðan fórum við inn í sal að sjá fullt af skemmtiatriðum frá krökkum sem höfðu skráð atriðin áður en eftir að búið var að sýna öll atriðin var diskó til klukkan 12:00. Þetta var stuttur skóladagur og við þurftum ekki að mæta í skólan fyrr en klukkan 09:00.
En í dag er 20 desember og það eru bara 4 dagar til jóla. Í dag þurfti ég að mæta í skólan klukkan 08:15 af því að það var jólaball í skólanum. Jólaballið er alltaf skipt í 3 sýningar og látið vita hvenær hvaða bekkir eiga að mæta í skólan.
Ég þurfti að vera á öllum sýningunum af því að ég var í kór í helgileiknum. Allir sem tóku þátt í helgileiknum þurftu að vera á öllum sýningunum að sýna helgileikinn. En við sem tókum þátt í helgileiknum fengum um hádegið pítsu, brauðstangir og gos. Ég var komin heim um hálf 2 leytið.
Þá þurfti ég að bera út af því að um morgunin komu blöðin of seint svo að ég þurfti að bera út eftir skóla. Alex Ívar hjálpaði mér og þegar ég kom aftur heim fékk ég mér pönnukökur. Fljótlega eftir það keyrðu mamma og pabbi mig og Rebekku Lind til ömmu Árný og afa Halldór að baka og föndra og á meðan fóru mamma og pabbi í Kringluna að kaupa jólagjafir. Ég er búin að gera 3 þrívíddarkort og amma gerði einn kassa fyrir mig.
Nú er ég að bíða eftir mömmu og pabba að koma að sækja okkur.
P.s. Nú er ég komin í jóaffrí og í jólagjöf frá Fréttablaðinu fékk ég Simpsons Movie!
Kv. Smiley-gangster1
Smiley-gangster1Smiley Gangsters
Þetta er smiley-gangster1 hérna (Alexandra Líf) og ég segi bara góðan dag. Í dag er 18.desember og aðfangadagur er bara næsta mánudag.í dag var svona eiginlega seinasti skóladagurinn fyrir jól en við vorum bara að föndra og þeir sem vildu máttu horfa á myndina The Polar Express. Sumir voru samt uppi á bókasafni að klára verkefni í tölvum.
Seinasta föstudag eins og þið kannski munið var ég að halda upp á afmælið mitt. Daginn eftir (af því að við gistum saman) um morgunin horfðum við á myndina Take The Lead og kláruðum ísana og kökuna. Síðan þegar myndin var búin fórum við inn í herbergi og vorum að fíflast geggt mikið. Um 3 leytið löbbuðum við niður í Egilshöll og fórum að skauta og vorum þar í sirka klukkutíma. Við keyptum okkur franskar og kokkteilssósu og borðuðum á leiðinni heim. Við vorum komnar aftur heim til ömmu minnar og afa um 5 laytið og klukkutíma seinna sótti mamma okkur og við fórum heim til mín og þaðan sótti mamma Lilju og keyrði hana heim til sín. Þetta var allt geggt gaman.
Á sunnudaginn fórum við krakkarnir í Kringluna að kaupa jólagjafir og síðn í gær fór mamma með mér, bróðir mínum (Alex Ívar), systur minni (Rebekka Lind) og vinkonu hennar (Hulda) í Kringluna og þar voru þær að kaupa gjafir fyrir einhvern svona leik í skólanum.
Ég og Rebekka Lind keyptum gjöf handa Tönju Rós og Alex Ívar keypti gjöf handa okkur systrum hans og gjöf handa pabba.
En á morgun eru litlu jólin í skólanum en þá megum við koma með gos og smákökur í skólann og síðan þeir sem vilja mega koma með atriði á sal. Við erum að fara að gera General sýningu fyrir helgileikin á morgun til að æfa okkur fyrir framan áhorfendur. Síðan verður líka diskó. Á fimmtudaginn verður jólaball og þá sýnum við helgileikin á þremur sýningum en fáum í staðin pizzu eða eitthvað þannig. Ég er í kórnum í helgileiknum. Litlu jól er skertur skóladagur svo að við mætum klukkan 09:00 en förum heim klukkan 12:00.
Ég held að ég sé búin að segja nóg fyrir í dag.
Bæbæ,
Kv. Smiley-gangster1
Long time no seeSmiley Gangsters
Nei Góðan daginn.Eða gott kvöld réttara sagt. Við erum bara komnar í sjöunda bekk. Orðnar svo stórar stelpur.
Ég smiley-gangster1 er bara eiginlega ný búin að eiga afmæli (13.okt.) er orðin tólf ára.
Ég er að halda upp á afmælið mitt akkúrat núna(soldið sein) en ég bauð bara tveimur bestu vinkonum mínum
Rúnu og Lilju (smiley-gangster2). Rúna komst ekki útaf brjáluðu veðri svo að það er bara ég og Lilja í smiley party!
Við erum búnar að kaupa Ben&Jerry ís og við bökuðum brownie og erum að bíða eftir pítsuni. Síðan ætlum við að horfa á Hairspray og hafa geggt mikið stuð. Á morgun förum við í Egilshöllina að skauta.
Nú er okkur bara byrjað að hlakka til jólanna (hver gerir það ekki?). Það eru bara 10 dagar til jóla.
Í dag var svo mikið óveður eins og þið kannski vitið. Lögreglan mælti meira segja með því að krakkar færu ekki í skólann svo að við fórum ekki í skólann. Það mættu bara sjö krakkar í mínum bekk (smiley-gangster1).
Verð að fara.
Kv. Smiley-gangster1 og smiley gangster2
HÆHÆSmiley Gangsters
Eins og þið sjáið erum við búnar að bæta meiru efni við inná síðuna okkar.Á mánudaginn er seinasti skóladagurinn. Jibbí.
Á miðvikudaginn er síðan einkunnaafhending og gullakistudagur.
Eftir það er komið sumarfrí.
Á mánudaginn fara allir 6. og 7. bekkirnir saman í Gerplu að leika okkur.
Og síðan verður höldum við útileikir.
Skólinn verður frá 8:10-12:00.
jæja nú verðum við að fara að hætta.
Kv.smiley-gangsters
Hey heySmiley Gangsters
Hellúúúú!Þetta eru smiley-gangsters #1 og #2.
Þetta er rosa skrýtið. Sko þetta er svolítið weird. Það má ekki hjóla í skólann eða það á ekki að gera það. En við erum eiginlega neyddar til að hjóla í skólann. Þetta hljómar skringilega. We know.
En við þurfum ekki að taka það fram hvað það er heitt í dag. Fjúff. Þið hafið örugglega tekið eftir því.
EN eins og við segjum alltaf (eða ekki)
Brosiði framan í sólina og þá grillar hún ykkur lifandi (not) bara grín.
En allavegana Brosið framan í sólina (og auðvitað heiminn) Þá mun sólin(og heimurinn) brosa framan í þig.
Varúð: Áður en þið brosið framan í sólina vinsamlegast setjið upp sólgleraugu.
Nú verðum við að fara en við tölum við ykkur seinna.
´Bæjó spæjó
Smiley-gangsters #1 og #2
HæjSmiley Gangsters
Hey jó!Smiley-gangster #1here.
Í dag ætla ég að byrja á að segja frá fréttum.
Á laugardaginn eru ég Lilja og Litla systir mín Rebekka Lind að fara í óvissuferð. Við nefnilega æfum samkvæmisdans niðri í ÍR og danshópurinn er að fara í óvissuferð.
Ég og Lilja erum nýbúnar að keppa í dansi. Við lentum í 5. sæti í cha cha cha og djæf. Síðan lentum við í 3. sæti í enskum vals og quickstep. Yibbí!
Mig hlakkar svo til. Skólinn er að verða búin. En nú eru prófvikurnar að byrja. Það er svo leiðinlegt.
Jæja nú verð ég að kveðja.
Bæbæ
Kv.
Alexandra Líf
(smiley-gangster #1)
HelloSmiley Gangsters
Þetta með skoðanakönnunina þá langar mig bara að segja við þau sem halda að þau séu ekki falleg.
Þið eruð öll alveg roooooooooooooooooooooooooooooooosalega falleg.
Guð hefði ekki skapað ykkur svona ef honum hefði fundist þetta ljótt.
Ef þið mynduð búa til eitthverja mynd myndu þið vilja að allir væru að tala um hvað myndin væri ljót?
ÞVÍ SVO ELSKAÐI GUÐ HEIMIN AÐ HANN GAF SON SINN EINGETINN TIL AÐ HVER SEM Á HANN TRÚIR GLATIST EKKI HELDUR HAFI EILÍFT LÍF.
AMEN
KV.smiley-gangsters #1 and #2
ÚtilegaSmiley Gangsters
Við höfum skrifað lítið undanfarið því að það er búið að vera svo mikið að gera . En í gær gistum við hjá ömmu Alexöndru Lífar. Við ætluðum að gista í tjaldi en það var svo mikið rok en því var bjargað með því að setja bílinn fyrirSvo gerðum við okkur til og fengum brauð,kex og kakó með okkur út í tjald.
Síðan átum við og drukkum og fórum að sofa. Eftir að við vöknuðum klæddum við okkur og fórum inn og þar gerðist margt. fyrst héldum við tískusýningar með gömlum fötum og hönnuðum föt á hvor aðra úr sjölum
Það var tekið mynd af okkur og við fórum á hringinn og svo eyddum við deginum mað því að fýflast og leika við kettina.
Kv.Smiley-gangsters
SumarfríSmiley Gangsters
Sumarið er komið eins og flestir hafa tekið eftirog þó að það sé ekki alltaf heitt eins og mér finnst að
ætti að vera þá er nú gott að losna úr skólanum og
fara í frí.
Ég held að flestir séu sammála mér með það.
Kv.